Dagur einhleypra - svartur fössari - netmánudagur - jól
Söfnin í Safnahúsinu á Egilsstöðum eru með frábært tilboð fyrir þau sem dreymir um að slaka á í notalegu umhverfi og eiga gæðastund án truflana.
Þriðjudagana 10. og 24. nóvember bjóða söfnin upp á lengri opnun fyrir fullorðna frá klukkan 18 til 22 undir slagorðinu „róvember". Sömu daga býður bókasafnið einnig upp á hádegisjóga með Agnesi Brá Birgisdóttur jógakennara.
Komið og eigið rólega stund á bókasafninu við lestur eða spil og í anddyri Safnahússins er kjörið að tylla sér með hannyrðir og hlýða á húslestur.
Leyfðu þér að eiga friðsæla stund án áreitis vegna afsláttardaga og jólaundirbúnings.
Öll fullorðin velkomin að eiga notalega stund í róvember.
Sjá upplýsingar um Róvember á Facebook: https://fb.me/e/9LDJYcnJJ
Sjá upplýsingar um hádegisjóga á Facebook: https://fb.me/e/8ARaksE6D
