Listasafn Íslands og Skaftfell á Seyðisfirði standa fyrir námskeiði í aðferðum Sjónarafls fyrir kennara og aðra sem vinna með miðlun í starfi sínu.
Sjónarafl er þjálfunaraðferð í myndlæsi sem Listasafn Íslands hefur þróað. Um er að ræða samræðuaðferð sem gefur nemendum/gestum lykla til að skoða myndmál listaverka, sem og annara myndmiðla og muna. Aðferðin byggir á erlendum rannsóknum sem hafa sýnt að slík þjálfun auki hugtakaskilning, hæfni í tjáningu og rökhugsun nemenda. Aðferðin hefur verið þróuð og prófuð hér á Íslandi í samstarfi við skólasamfélagið - nemendur og kennara. Sjónarafl hefur verið tilnefnt til íslensku menntaverðlaunanna og íslensku safnaverðlaunanna.
Námskeiðin fara fram í Skaftfelli og standa yfir í tvær klukkustundir. Þau skiptast í kynningu á Sjónaraflsnámsefninu og æfingar á vettvangi inni í sýningunni Kjarval á Austurlandi. Kennarar eru Ingibjörg Hannesdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir sem báðar starfa hjá Listasafni Íslands.
Námskeiðsgjald er kr. 5000,- sem greiðist við komu, en bókin Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi er innifalin í gjaldinu og afhendist á staðnum við komu.
Tímasetningar:
Þriðjudaginn 16.sept kl. 10 – 12
Miðvikudaginn 17. sept kl. 11 - 13
Skráning á mennt@listasafn.is
Einstakt tækifæri til að njóta fallegrar sýningar á verkum Kjarvals frá Austurlandi og læra praktíska aðferð sem nýtist svo sem verkfæri í miðlun.