Fimmtudaginn 24. september munu Bókasafn Múlaþings, Minjasafn Austurlands og Héraðsskjalasafn Austfirðinga sækja Brúarásskóla heim.
Safnahúsið sprettur að þessu sinni upp í tengslum við árlega Brúarásleika skólans.
Kl. 13:00 – 15:00 Fræðsludagskrá fyrir leik- og grunnskólabörn
Kl. 16:00 – 18:30 Opið hús fyrir gesti og gangandi
Til sýnis verða munir sem tengjast svæðinu úr safnkosti Minjasafnsins og Héraðsskjalasafnið verður með sýnishorn af skjölum og ljósmyndum úr héraði auk þess að sýna Guðbrandsbiblíu sem er í eigu Hofteigskirkju. Bókasafnið verður með titla til útláns og nálgast má bækur sem pantaðar hafa verið gegnum vefinn leitir.is eða beint hjá safninu.
Einnig gefst kostur á að ræða við starfsfólk safnanna og koma með muni, skjöl eða ljósmyndirtil skoðunar.
Verið öll velkomin!
Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/6JeaPE9Wo
