Rithöfundurinn Arndís Þórarinsdóttir býður ungmennum í 7.-10. bekk til fundar á Bókasafni Múlaþings Egilsstöðum mánudaginn 12. október kl. 16-19, þar sem hún fjallar um það hvernig sögur verða til og hvernig bækur verða til.
Á námskeiðinu gera þátttakendur skáldskapar-tilraunir, rannsaka hvernig texti virkar, tala um bækurnar sem þeir elska og Arndís kjaftar frá öllum leyndarmálum útgáfubransans.
Skráning er á netfanginu bokasafn@mulathing.is.
Smiðjan er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Arndís hefur gefið út margar vinsælar bækur og má þar nefna Blokkin á heimsenda, Nærbuxnaverksmiðjan, Bál tímans, Kollhnís, Mömmuskipti og Sólgos.
Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði
Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/27eN39NAcR
