Fara í efni

Sögusmiðja fyrir 9-12 ára með Ævari Þór

Bókasafn Múlaþings Seyðisfirði 21. september 2026 kl. 16:00-18:00

Sögusmiðja fyrir börn á aldrinum 9-12 ára þar sem Ævar Þór Benediktsson fer yfir bækurnar sínar og skoðar hvernig maður breytir hugmynd í sögu og hvernig sú hugmynd verður svo að bók.

Fullkomin stund fyrir unga höfunda sem vilja skyggnast bak við tjöldin.

Smiðjan er þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning er nauðsynleg þar sem fjöldi þátttakenda í smiðjuna er takmarkaður. Skráning fer fram með því að senda póst á netfangið bokasafn@mulathing.is. Vinsamlega takið fram nafn og aldur barns, símanúmer forráðamanns og á hvaða smiðju.

Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði og hluti af Bras - menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi.

Sjá Facebookviðburð 

Upplýsingar um aðra viðburði BRAS má finna hér.

Sögusmiðja fyrir 9-12 ára með Ævari Þór Benediktssyni

Getum við bætt efni þessarar síðu?