Á bókasafnsdaginn, mánudaginn 28. september klukkan 16:30, býður Bókasafn Múlaþings Djúpavogi til sögustundar við varðeld í samstarfi við Náttúruskólann.
Eigum notalega stund saman við varðeld, hlustum á lestur bókarinnar Etna og Enok ferðast um Ísland og fáum eitthvað að borða eða drekka sem hitað er við varðeldinn.
Nánari staðsetning verður auglýst síðar.
Sögustundir við varðeld verða haldnar á vegum Bókasafns Múlaþings í samstarfi við Náttúruskólann á öllum starfsstöðvum Bókasafnsins fram að jólum. Verkefnið hlaut Menningarstyrk Múlaþings.
Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/4YZNgGZ0y
