Föstudaginn 2. október klukkan 16:30 býður Bókasafn Múlaþings Seyðisfirði til sögustundar við varðeld í samstarfi við Náttúruskólann.
Eigum notalega stund saman við varðeld, hlustum á lestur bókarinnar Etna og Enok ferðast um Ísland og fáum eitthvað að borða eða drekka sem hitað er við varðeldinn.
Gott að taka með sér bolla og sessu.
Hittumst við bókasafnið og röltum saman þaðan að varðeldinum.
Sögustundir við varðeld verða haldnar á vegum Bókasafns Múlaþings í samstarfi við Náttúruskólann á öllum starfsstöðvum Bókasafnsins fram að jólum. Verkefnið hlaut Menningarstyrk Múlaþings.
Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/513A5NiYt
