Sýning
Roman Signer: Íslensk verk
Sýningarstjóri: Gavin Morrison
4. júlí – 27. september 2026
Sýningaropnun: 4. júlí klukkan 16–18
Skaftfell Myndlistarmiðstöð
Seyðisfjörður, Ísland
Roman Signer (f. 1938) er svissneskur listamaður sem lýsir sjálfum sér sem Aktionskünstler, athafnalistamanni. Hann gerir kvikmyndir, myndbönd, ljósmyndir og innsetningar af sviðsettum atburðum: hlutum sem falla úr jafnvægi, hversdagslegum hlutum sem verða fyrir óvenjulegum athöfnum og andstæðum kröftum. Þessar athafnir beinast að endurteknu safni hluta: borðum, stólum, stígvélum, kajökum, regnhlífum. Allt er eðlilegt en við óvæntar aðstæður.
Signer er einn af mikilvægustu listamönnum samtímans og frá því snemma á tíunda áratugnum hefur hann heimsótt Ísland til að ferðast og vinna verk. Ísland er orðið meira en bakgrunnur fyrir myndbönd; það er nánast aðalpersóna í verkum hans. Þetta samband hefur getið af sér nokkur af hans mikilvægustu verkum, svo sem: Kajakferð um Snæfellsnes frá 2000, myndbandsinnsetningu með illa förnum kajak. Myndbandið sýnir listamanninn í kajak sem er dreginn um malarvegi Snæfellsness. Verkið er absúrd, ljóðrænt og gleðilegt.
Þessi sýning er yfirlitssýning á verkum sem hann hefur unnið í ferðum sínum til Íslands. Margar þessara ferða hafa hafist á Seyðisfirði. Á sýningunni verða eldri súper-8 kvikmyndir, innsetningar, skúlptúrar og ljósmyndir. Hún gefur tækifæri til að íhuga hlutverk landslags í verkum hans og eðli sérstaks sambands hans við Ísland.
Í tengslum við sýninguna verður ný útgáfa bókarinnar When You Travel in Iceland You See a Lot of Water gefin út. Bókin er samtal milli íslenska listamannsins Tuma Magnússonar og Signer á ferðalagi þeirra um Ísland.
Roman Signer býr og starfar í St. Gallen í Sviss. Hann stundaði nám við Schule für Gestaltung í Zürich árið 1966 og hélt síðan áfram í skúlptúrnám við Schule für Gestaltung í Luzern og þaðan í Listaháskólann í Varsjá í Póllandi. Hann á að baki langan sýningarferil. Meðal mikilvægra einkasýninga má nefna: Kunsthaus Zürich 2025; Barbican Centre, London 2015; China Academy of Arts, Hangzhou 2014; Swiss Institute, New York 2010; Palais de Tokyo, París 2009. Hann var fulltrúi Sviss á Feneyjatvíæringnum árið 1999. Signer hefur tvisvar áður sýnt í Skaftfelli: Birgir Andrésson, Tumi Magnússon og Roman Signer 2010 og RÓ RÓ 2014.
//
Roman Signer: Icelandic Works
Curator: Gavin Morrison
July 4 – September 27, 2026
Skaftfell Art Center
Seyðisfjörður, Iceland
Roman Signer (b. 1938) is a Swiss artist who describes himself as an Aktionskünstler, an action artist. He makes films, videos, photographs and installations of staged events: objects falling out of balance, everyday objects subjected to extraordinary actions and opposing forces. These actions focus on a recurring collection of objects: tables, chairs, boots, kayaks, umbrellas. Everything is normal but in unexpected circumstances.
Signer is one of the most important artists of our time, and since the early 1990s he has visited Iceland to travel and create works. Iceland has become more than a backdrop for his videos; it is almost the main character in his works. This relationship has given rise to some of his most important works, such as: Kayaking around Snæfellsnes from 2000, a video installation with a badly damaged kayak. The video shows the artist in a kayak being pulled along the gravel roads of Snæfellsnes. The work is absurd, poetic, and joyful.
This exhibition is a retrospective of works he has made during his travels to Iceland. Many of these journeys have begun in Seyðisfjörður. The exhibition will feature older super-8 films, installations, sculptures and photographs. It provides an opportunity to consider the role of landscape in his work and the nature of his special relationship with Iceland.
In conjunction with the exhibition, a new edition of the book When You Travel in Iceland You See a Lot of Water will be released. The book is a conversation between Icelandic artist Tumi Magnússon and Signer on their journey through Iceland.
Roman Signer lives and works in St. Gallen, Switzerland. He studied at the Schule für Gestaltung in Zurich in 1966 and then continued his studies in sculpture at the Schule für Gestaltung in Lucerne and from there to the Academy of Fine Arts in Warsaw, Poland. He has a long exhibition career. Important solo exhibitions include: Kunsthaus Zürich, 2025; Barbican Centre, London, 2015; China Academy of Arts, Hangzhou, 2014; Swiss Institute, New York, 2010; Palais de Tokyo, Paris, 2009. He represented Switzerland at the Venice Biennale in 1999. Signer has previously exhibited twice in Skaftfell: Birgir Andrésson, Tumi Magnússon and Roman Signer, 2010, and RÓ RÓ, 2014.
