Fara í efni

Þjóðsögur og skrímsli

Minjasafn Austurlands, Egilsstöðum 1. október 2026
Hvað eru skrímsli? Hvernig þekkjum við þau? Eru til íslensk skrímsli? Hvernig birtast skrímsli í bíómyndum og tölvuleikjum?
 
Við munum skoða skrímsli út frá ýmsum sjónarhornum, velta fyrir okkur hvað það er sem einkennir skrímsli, ræða um helstu ógnvalda og furðuverur úr íslenskum þjóðsögum og velta því fyrir okkur hvernig ný skrímsli verða til. Þá munu þátttakendur einnig útbúa sitt eigið skrímsli. Skapa sögu þeirra og myndgera skrímslið.
 
Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands, leiðir smiðjuna.
Viðburðurinn er fyrir 8-12 ára.
Skráning á eyrun.helgadottir@mulathing.is
 
 
Upplýsingar um aðra viðburði BRAS má finna hér.
Getum við bætt efni þessarar síðu?