Tour de Ormurinn er hjólreiðakeppni á Austurlandi, nánar tiltekið í Múlaþingi og Fljótsdal. Keppnin hóf göngu sína árið 2012. Hjólaleiðir eru þrjár, 68 km hringur, 103 km hringur og 26 km leið. Keppnin er opin öllum 12 ára og eldri. Hjólað er umhverfis Löginn í styttri hringnum en inn í botn Fljótsdals í þeim lengri. Startað er í hringina frá Egilsstöðum og 26 km leiðin hefst í Hallormsstað. Endamark er staðsett á Egilsstöðum. Mikil áhersla er lögð á öryggismál, unnið er í góðu samstarfi við lögregluna og aðra viðbragðsaðila.
Fjöldi sjálfboðaliða kemur að framkvæmd keppninnar og hafa skipuleggendur keppninnar fengið mikið hrós frá þátttakendum fyrir öfluga og sýnilega brautarvörslu.
Ræst verður í 68 og 103 km kl. 9:00 við verslunina Vask, Sólvangi 5 á Egilsstöðum. Ræst verður í 26 km leiðina við Orkuna á Hallormsstað kl. 9:40
Skráning fer fram á netskraning.is.
Umræða og upplýsingar eru birtar á Facebook