Fara í efni

Tríó Öræfi og Arnaldur Arnarson - Tónleikaröðin Bláa kirkjan

Bláa kirkjan, Seyðisfirði 22. júlí 2026 kl. 20:30

Þverflauta, víóla, selló og gítar með létta og klassíska sumartónleika.

Tríó Öræfi býður upp á létta, áheyrilega og sumarlega dagskrá þar sem sígild tónlist fær að njóta sín í óhefðbundinni og heillandi hljóðfæraskipan. Yfirskrift tónleikanna er Zingara, eftir samnefndum kafla í kvartett Matiegka og Schuberts sem fluttur verður á tónleikunum en orðið merkir sígaunastúlka.

Tríó Öræfi skipa þær Sóley Þrastardóttir þverflautuleikari, Þórunn Harðardóttir á víólu og Ásdís Arnardóttir sellóleikari. Að þessu sinni fær Öræfi til liðs við sig gítarleikarann Arnald Arnarson, sem hefur verið búsettur í Barcelona um árabil.

Hryggjarstykki dagskrárinnar er kvartett í fimm köflum eftir Franz Schubert fyrir gítar, flautu, víólu og selló. Verkið byggir á tríói eftir Wentzel Matiegka, en í útsetningu Schuberts bætist sellórödd við og færir tónmálinu aukna dýpt og ríkari litbrigði.

Á tónleikunum verður einnig flutt nýtt verk eftir Oliver Kentish fyrir þessa hljóðfærasamsetningu, sem er samið sérstaklega fyrir hópinn. Auk þess verða fluttir kaflar úr tveimur tríóverkum frá rómantíska tímabilinu: Grand Trio op. 16 eftir Josef Kreutzer og Terzetto Concertante eftir Niccolò Paganini. Þótt verkin hafi bæði yfir sér rómantískan blæ eru þau ólík að karakter og áferð, og hin óvenjulega hljóðfæraskipan gæðir hverju þeirra lífi.

Almennur aðgangseyrir: 4.000 kr. Öryrkjar og eldri borgarar: 3000 kr. 16 ára og yngri: Ókeypis

//

Trio Öræfi offers a light, accessible, and summery program where classical music shines in an unconventional and charming instrumentation. The concert is titled Zingara, after the movement of the same name in the Matiegka and Schubert quartett which will be performed, a word that translates to “gypsy girl.”

Trio Öræfi consists of Sóley Þrastardóttir on flute, Þórunn Harðardóttir on viola, and Ásdís Arnardóttir on cello. For this occasion, Öræfi is joined by guitarist Arnald Arnarson, who has been based in Barcelona for many years.

The backbone of the program is a five-movement quartet by Franz Schubert for guitar, flute, viola, and cello. The work is based on a trio by Wenzel Matiegka, but Schubert’s arrangement adds a cello part, bringing increased depth and richer tonal colors to the music.

The concert will also feature a new piece by Oliver Kentish for this specific instrumentation, composed especially for the ensemble. Additionally, movements from two trio works from the Romantic period will be performed: Grand Trio Op. 16 by Joseph Kreutzer and Terzetto Concertante by Niccolò Paganini. Although both pieces possess a Romantic character, they differ in texture and mood, with the unusual instrumentation breathing fresh life into each of them.

Getum við bætt efni þessarar síðu?