Fara í efni

Tu Ha? Tu Bjö!

Sláturhúsið, Egilsstöðum 30. október 2026 kl. 20:00-22:00

Tu Ha? Tu Bjö!

Tu Ha? Tu Bjö! er rannsóknar- og tilraunaverkefni fjögurra blásara sem hefur leitt þá um ótroðnar slóðir í tónsmíðum og spuna.

Samkomulag milli ólíkra tónskálda en jafnframt ólíkra flytjenda. Útkomunni mætti líkja við fiskitorfu sem syndir um samhæfð og samtaka en jafnframt frjáls og af því er virðist stefnulaus. Hún syndir bæði í grynningunum og í dýpinu, allt frá litríka kóralrifinu niður á myrkan hafsbotninn.

Í haust hefur verið mikið um að vera hjá sveitinni síðan hún gaf út sína fyrstu breiðskífu Tu Ha? Tu Bjö! á Menningarnótt ásamt Blöðrunni sjálfstæðri plötuútgáfu. Sveitin spilaði fyrir djarfa tónleikagesti á Jazzhátíð Reykjavíkur og næst á hátíðinni State of the Art ásamt kórnum Klið.

Seinna í vetur fylgir hún plötunni eftir með frekari tónleikaferðum um landið og útgáfutónleikum í höfuðborginni.

Þessa síðustu helgi í októberlok spilar hún á Austurlandi, nánar tiltekið á föstudagskvöldið í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og laugardagskvöldið í Tónspili í Neskaupstað.

Þessa tónleika ættu austfirskir tónlistarunnendur ekki að láta framhjá sér fara!

Tumi Torfason : trompet
Hannes Arason : trompet
Tumi Árnason : tenórsaxófónn
Björgvin Ragnar Hjálmarsson : tenórsaxófónn

Dags 30.10.
Tími 20:00
Miðaverð 3000 kr.

Getum við bætt efni þessarar síðu?