Fara í efni

Undir sömu stjörnu – óperutónleikar

Eskifjarðarkirkja 25. október 2026 kl. 15:00-18:00

Óperan heldur tónleika í Eskifjarðarkirkju sunnudaginn 25. október kl. 15.00. Viðburðurinn er hluti af opnunardagskrá Óperunnar, sem ferðast um landið með dagskrána Undir sömu stjörnu, með það að markmiði að ná til þjóðarinnar allrar.

Söngvarar Óperunnar flytja nokkrar af fegurstu perlum óperusögunnar og leikarar Þjóleikhússins, Ólöf Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason leiða áhorfendur í gegnum söguna. Fróðleik og skemmtun er fléttað saman þegar saga óperunnar er rakin frá hirðsölum Ítalíu til stranda Íslands.

Dagskráin sækir meðal annars innblástur til ástarstjörnu Jónasar Hallgrímssonar yfir Hraundranga og kvöldstjörnu Richards Wagner. Ólafur Egill Egilsson sér um handrit og leikstjórn og Richard Schwennicke er tónlistarstjóri. Söngvarar eru Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mantyla, Kristján Ingi Jóhannesson ásamt gestasöngvaranum Hlín Pétursdóttur Behrens.

Sinfóníuhljómsveit Austurlands leikur með og fram koma Óperukór Austurlands og Kammerkór Norðurlands.

Getum við bætt efni þessarar síðu?