Fara í efni

Vatnsdalur í Skriðdal

Tjarnarás 8, Egilsstöðum 5. september 2026 kl. 10:00-17:00

Laugardaginn 5. september (sunnudaginn til vara ef þannig viðrar) er Ferðafélag Fljótsdalshéraðs með skipulagða göngu frá Skriðdal yfir í Breiðdal í samvinnu við Ferðafélag Fjarðamanna.

Gengið verður upp frá Vatnsskógum í Skriðdal, um Vatnsdal og endað á Þorvaldsstöðum í Breiðdal. Lagt er af stað frá skrifstofu ferðafélagsins, Tjarnarási 8, Egilsstöðum kl 10:00. Leiðin er 20 km og er nokkuð auðveld yfirferðar. Hækkun er um 500 metrar.

Gott er að fá skráningar á ferdaf@ferdaf.is svo hægt sé að gera ráðstafanir með bíla.

Ef ferðin verður færð yfir á sunnudag, verða upplýsingar um það settar á Facebooksíðu Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, svo endilega fylgist með þar.

Verð: 1000 kr. 

Fararstjórn: Sigurjón Bjarnason / Kristinn Þorsteinsson

Vatnsdalur í Skriðdal

Getum við bætt efni þessarar síðu?