Fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 17 kemur rithöfundurinn Ásgeir Hvítaskáld í heimsókn á Bókasafn Múlaþings, Seyðisfirði.
Ásgeir mun lesa upp úr nýútkominni bók sinni „Vélstjórinn frá Aberdeen“ og segja frá rannsóknarvinnunni á bak við hana.
Verið öll velkomin.
Viðburðurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu og er styrktur af Bókasafnasjóði.
Úr kynningu á bókinni á bokatidindi.is: „Morðsaga byggð á sönnum atburðum. Átakanleg saga um hryllilegt morð sem framið var um borð í skoskum gufutogara í mynni Seyðisfjarðar árið 1894. Nýskipaður sýslumaður stóð frammi fyrir flóknustu morðgátu ævi sinnar. En var hægt að komast að sannleikanum? Þetta er spennandi glæpasaga en mun meira en einungis saga um glæp.“
Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/7DjzlGULH
