Fara í efni

Auglýsing um umferð á Seyðisfirði vegna Bjólfsgötu

Auglýsingin birt í Stjórnartíðindum

 

Samkvæmt heimild í 84. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, hefur byggðarráð Múlaþings samþykkt að setja eftirfarandi reglur um umferð á Seyðisfirði.
Auglýsingin hefur fengið samþykki frá lögreglustjóranum á Austurlandi og veghaldara sem er Múlaþing:

Allur akstur stórra ökutækja er bannaður á Bjólfsgötu, nema til vörulosunar hjá þjónustuaðilum.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar og varir frá 1. júní til 30. september ár hvert.

Samþykkt í byggðarráði Múlaþings 6. maí 2025.

 

Múlaþingi, 8. maí 2025

Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri

Síðast uppfært 30. júní 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?