Fara í efni

Reglur Múlaþings um framlög til stjórnmálasamtaka er bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga

 

Í 5. gr. laga nr. 162/2006, um starfsemi stjórnmálasamtaka, er fjallað um skyldu sveitarfélaga til að veita stjórnmálasamtökum framlög til starfsemi sinnar.

Á grundvelli 5. greinar laga nr. 162/2006, með síðari breytingum, eru reglur Múlaþings eftirfarandi:

1.gr.

Framlag til stjórnmálasamtaka sem bjóða fram til sveitarstjórnar skal ákvarðað af sveitarstjórn í fjárhagsáætlun viðkomandi árs. Úthlutun fer fram að loknum kosningum til þeirra stjórnmálasamtaka sem hlotið hafa a.m.k. 5% atkvæða eða einn mann kjörinn, til samræmis við framangreind lög. Framlögum skal úthlutað í hlutfalli við atkvæðamagn. Miða skal við að greiða 189 kr. á hvern íbúa sem lögheimili á í sveitarfélaginu 1. janúar á ári hverju. Þessi fjárhæð tekur breytingum árlega miðað við vísitölu neysluverðs í október ár hvert og er grunnvísitala 511,2 stig, m.v. október 2021.

2.gr.

Skilyrt er að viðkomandi stjórnmálasamtök hafi áður uppfyllt upplýsingaskyldu sína við ríkisendurskoðanda, sbr. 8. og 9. gr. laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra nr. 162/2006.

3.gr.

Á því ári sem sveitarstjórnarkosningar eru haldnar skal úthluta helmingi árlegs framlags fyrir kosningar, en síðari helmingi að þeim loknum og þá í samræmi við kjörfylgi í nýafstöðnum kosningum.

4.gr.

Reglur þessar taka þegar gildi.

 

Samþykkt af sveitarstjórn Múlaþings 11. maí 2022

Síðast uppfært 06. janúar 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?