1. gr. Almenn háttvísi og tillitssemi
Leigjendur skulu sýna nágrönnum sínum tillitssemi, virðingu og góða umgengni. Hávaði skal vera innan hófs allan sólarhringinn og skulu leigjendur sýna sérstakt tillit milli kl. 22:00 og 07:00.
2. gr. Sameign og inngangar
Sameign, t.d. anddyri, stigagangar, þvottahús, lóð, bílastæði og sameiginlegar geymslur, skulu ávallt vera snyrtileg og vel aðgengileg. Óheimilt er að geyma muni eða skilja nokkuð eftir í sameign sem torveldar rýmingu eða veldur ama eða óþrifnaði. Leigjandi skal fylgja reglum húsfélags eftir því sem við á.
3. gr. Bílastæði og ökutæki
Einungis má nýta bílastæði hússins fyrir löglega skráð ökutæki. Óheimilt er að hindra aðkomu annarra, geyma ónúmeruð ökutæki, tjaldvagna eða fellihýsi nema með skriflegu leyfi. Brot á þessu getur kallað á að ofangreint verði fjarlægt á kostnað leigjanda. Óheimilt er að sérmerkja bílastæði eða hluta sameignar án samþykkis Múlaþings.
4. gr. Reykingar, eldvarnir og eldfim efni
Reykingar eru bannaðar innanhúss og á svölum í öllum leiguíbúðum Múlaþings sem og í sameign húss. Leigjandi skal tryggja að reykskynjarar og slökkvitæki séu í lagi. Geyma skal eldfim eða hættuleg efni á viðeigandi stöðum.
5. gr. Gæludýr
Gæludýr eru leyfð nema annað komi fram í reglum viðeigandi húsfélags. Samþykkt Múlaþings um gæludyrahald gildir.
6. gr. Viðhald, tjón og ábyrgð leigjanda
Leigjandi skal tafarlaust tilkynna skemmdir eða bilanir. Fyrsta tilkynning tjóns skal ávallt fara til VÍS í símann 560 5000 og síðan til Múlaþings. Leigjandi ber ábyrgð á skemmdum af hans völdum og er hvattur til að hafa fullnægjandi tryggingar.
7. gr. Framleiga
Framleiga íbúðar er óheimil, hvort sem er að hluta eða öllu leiti.
8. gr. Svalir og ásýnd húss
Svalir skulu ávallt vera snyrtilegar, ekki skal geyma þar hluti sem valda óþægindum eða spilla ásýnd húss.
9. gr. Sorpmál og hreinlæti
Leigjendur eru ábyrgir fyrir sameiginlegum skyldum sínum við þrif á sameign, þar sem við á.
Sorp skal setja í þar til gerð ílát og ekki skilja eftir á sameiginlegum svæðum eða svölum. Endurvinnsluefni skal skila á viðeigandi móttökustaði.
10. gr. Notkun íbúðar
Óheimilt er að stunda atvinnurekstur í hinu leigða. Öll notkun íbúðar skal vera í samræmi við lög og reglur.
11. gr. Skylda til að veita aðgang
Leigjandi er skyldugur til að veita starfsmönnum og eða aðilum á vegum Múlaþings aðgang að hinu leigða, leitast skal við að veita leigjanda eðlilegan fyrirvara.
12. gr. Samskipti og verklag
Múlaþing getur sett sérstakt verklag um viðbrögð þegar leigjandi sýnir óviðeigandi hegðun eða neitar samstarfi.
13. gr. Gildistaka og viðurlög
Reglur þessar eru bindandi hluti leigusamnings. Brot geta leitt til áminningar, uppsagnar eða riftunar á samningi í samræmi við húsaleigulög. Reglur þessar geta tekið breytingum og eru birtar á vef Múlaþings. Gildandi reglur hverju sinni taka til allra leigusamninga.
Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 11. febrúar 2026