Fara í efni

Aðalskipulagsbreyting, akstursíþróttasvæði í Skagafelli

17.11.2021

Sveitarstjórn Múlaþings hefur samþykkt að kynnt verði skipulagslýsing vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna akstursíþróttasvæðis í Skagafelli í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fyrirhuguð breyting felur í sér að skilgreiningu um 140 ha svæði verður breytt úr óbyggðu svæði í opið svæði til sérstakra nota með skipulagsákvæðum sem samræmast fyrirhugaðri notkun.

Hægt er að nálgast skipulagslýsinguna á skrifstofum sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum eða hér á heimasíðunni. Áformin verða einnig kynnt á Facebook síðu Múlaþings fimmtudaginn 18. nóvember n.k. kl. 17:00

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 4. desember 2021.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?