Fara í efni

Aðalskipulagsbreyting og nýtt deiliskipulag, Álfaás

18.11.2021

Aðalskipulag Fljótsdalshéraðs 2008 - 2028. Aðalskipulagsbreyting vegna Álfaáss – gistiþjónustu í landi Ketilsstaða á Völlum.

Deiliskipulag fyrir Álfaás.

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti á fundi sínum þann 13. október sl. að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028. Breytingin er auglýst í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur í sér breytta landnotkun við Álfaás á Völlum með því að tilgreina verslunar- og þjónustusvæði þar sem landbúnaðarland er fyrir á þessu svæði. Hliðstæð tillaga að breytingu á aðalskipulagi var kynnt árið 2017 en því ferli lauk ekki með staðfestingu breytingarinnar.

Samhliða er auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Álfaás, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast tillögurnar hér á heimasíðunni og á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum. Aðalskipulagstillagan mun jafnframt liggja frammi hjá Skipulagsstofnun á auglýsingatíma.

Breyting á aðalskipulagi, greinagerð

Deiliskipulag, greinagerð og uppdráttur

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn skriflegar ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 31. desember 2021.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?