Fara í efni

Akstursíþróttasvæði í Skagafelli, aðalskipulagsbreyting og nýtt deiliskipulag

19.01.2023

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti á fundi 14. desember 2022 að tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 fyrir akstursíþróttasvæði í Skagafelli yrði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða er auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi svæðisins skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast tillögurnar á skrifstofum sveitarfélagsins og hér neðar í fréttinni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við þær. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 2. mars 2023.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillögurnar fyrir tilskilinn frest telst samþykkur þeim.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Gögn til kynningar:

Aðalskipulagsbreyting, greinargerð

Deiliskipulag, greinargerð

Deiliskipulag, uppdráttur

Getum við bætt efni þessarar síðu?