Fara í efni

Breytt lóðamörk í landi Grundar við Stuðlagil, deiliskipulagsbreyting

14.10.2025

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 9. október 2025 að kynna vinnslutillögu vegna breytinga á deiliskipulagi ferðaþjónustu í landi Grundar á Jökuldal skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsáætlunin er unnin af LOGG ehf fyrir hönd landeigenda.

Breytingin felur í sér stækkun viðskipta- og þjónustulóðar um 2,7 ha. og fjölgun byggingarreita á lóðinni.

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 11. nóvember 2025. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Hugrún Hjálmarsdóttir

Getum við bætt efni þessarar síðu?