Fara í efni

Egilsstaðaflugvöllur, deiliskipulagsbreyting

21.05.2025

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að kynna tvær vinnslutillögur vegna breytinga á deiliskipulagi Egilsstaðaflugvallar skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsáætlanirnar eru unnar af Verkís og EFLU fyrir hönd Isavia Innanlandsflugvalla ehf. og eru tilkomnar vegna áforma um nýja akbraut og uppsetningu nýrra aðflugsljósa. 

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd - ný akbraut

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd - ný aðflugsljós

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 11. júní 2025. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigríður Kristjánsdóttir

Getum við bætt efni þessarar síðu?