Fara í efni

Framkvæmdaleyfi, snjóflóðavarnargarðar á Seyðisfirði

18.10.2021

Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis vegna snjóflóðavarnargarða á Seyðisfirði ásamt gögnum.

Í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123 frá 2010 veitti skipulagsfulltrúi Múlaþings, þann 14. október 2021, Múlaþingi framkvæmdaleyfi fyrir gerð snjóflóðavarnargarða á Seyðisfirði undir Bjólfshlíðum fyrir svæði sem nær til Öldu og Bakkahverfis. Fyrir liggur álit Skipulagsstofnunar um umhverfisáhrif framkvæmdarinnar, dags. 27. ágúst 2020, skv. ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.

Skilyrðum um útgáfu framkvæmdaleyfis vegna snjóflóðavarnargarða á Seyðisfirði, samkvæmt 11. gr reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, hefur verið fullnægt, þ.e. veiting framkvæmdaleyfis hefur verið samþykkt af leyfisveitanda og framkvæmdaleyfisgjald hefur verið greitt.

Í samræmi við 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, er vakin athygli á því að þeir sem eiga lögvarinna hagsmuna að gæta sem og umhverfis- og útivistarsamtök með minnst 30 félaga, enda samrýmist tilgangi samtakanna að gæta þeirra hagsmuna sem kæran lýtur að, geta kært útgáfu leyfisins innan mánaðar frá birtingu auglýsingar í Lögbirtingablaðinu sem er fyrirhuguð þann 21. október nk. til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, sjá nánar heimasíðu nefndarinnar www.uua.is.

 

Fylgigögn framkvæmdaleyfisins eru eftirfarandi og má nálgast hér og á heimasíðu Skipulagsstofnunar:

Umsókn um framkvæmdaleyfi, Múlaþing, dagsett 9. september 2021

Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði – Aldan og Bakkahverfi, annar áfangi. Landslagsteikningar. Útboð nr. 21498, júní 2021. FSR, Hnit Verkfræðistofa og Landslag.

Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði – Aldan og Bakkahverfi. Útboðs- og samningsskilmálar. Útboð nr. 21498 FSR SF-006 útg 20., júní 2021.

Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði – Aldan og Bakkahverfi. Verklýsing. Útboð nr. 21498, Júní 2021. FSR, Hnit Verkfræðistofa og Landslag dags.

Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði – Aldan og Bakkahverfi, Mat á umhverfisáhrifum, Matsskýrsla. VSÓ ráðgjöf, júní 2020.

Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði – Aldan og Bakkahverfi, álit um mat á umhverfisáhrifum. Skipulagsstofnun, 27. ágúst 2020.

Viðbrögð við umsögnum og athugasemdum sem bárust við frummatsskýrslu.

Getum við bætt efni þessarar síðu?