Fara í efni

Frístundabyggð í landi Úlfsstaða, aðalskipulagsbreyting og nýtt deiliskipulag

17.03.2022

Sveitarstjórn Múlaþings hefur samþykkt að kynnt verði skipulagslýsing fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna frístundabyggðar í landi Úlfsstaða á Völlum í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagssvæðið er um 4,3 ha að stærð og er staðsett sunnan við veginn upp að frístundabyggð að Einarsstöðum og Úlfsstaðaskógi. Samhliða breytingu á aðalskipulagi verður kynnt skipulagslýsing nýs deiliskipulags þar sem gert verður ráð fyrir lóðum undir frístundahús.

Áformin verða kynnt á facebook síðu Múlaþings fimmtudaginn 17. mars kl. 12:00 og verður upptakan aðgengileg áfram. Jafnframt verður hægt að nálgast lýsinguna á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum og hér neðar í fréttinni.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 31. mars 2022.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

 

Gögn til kynningar:

Skipulagslýsing, dags. 15.02.2022

Getum við bætt efni þessarar síðu?