Fara í efni

Hafrafell - frístundabyggð, nýtt deiliskipulag

23.02.2022

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að unnið verði deiliskipulag fyrir frístundabyggð í landi Hafrafells 1, Merkjadal. Múlaþing auglýsir til kynningar vinnslutillögu deiliskipulagsins sbr. 40. gr. skipulagslaga.

Vinnslutillagan verður kynnt á facebook síðu Múlaþings fimmtudaginn 24. febrúar kl. 12:00 og verður upptakan aðgengileg áfram. Jafnframt verður hægt að nálgast tillöguna á skrifstofum sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum og hér neðar í fréttinni.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings, Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 11. mars 2022.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson 

 

Gögn til kynningar:

Greinagerð, dags. 19.01.22

Uppdráttur, dags. 19.01.22

Getum við bætt efni þessarar síðu?