Fara í efni

Iðnaðar- og athafnasvæði við Valgerðarstaði, nýtt deiliskipulag, Tillaga

14.09.2022

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að auglýst verði tillaga fyrir nýtt deiliskipulag iðnaðar- og athafnasvæðis við Valgerðarstaði í Fellum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum eða hér neðar í fréttinni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 27. október 2022.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Gögn í auglýsingu:

Greinagerð, dagsett 7. september 2022

Uppdráttur, dagsettur 7. september 2022

Getum við bætt efni þessarar síðu?