Fara í efni

Íþróttasvæði á Egilsstöðum, aðalskipulagsbreyting

02.02.2023

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti á fundi 14. september 2022 að tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna nýs íþróttasvæðis utan við Dyngju á Egilsstöðum, hverfisvernd umhverfis Gálgaklett og ný gönguleið frá Fellabæ að Vök yrði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofum sveitarfélagsins og hér neðan í fréttinni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 16. mars 2023.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Skipulagsgögn í auglýsingu:

Tillaga, dags. 29.11.2022

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?