Fara í efni

Íþróttasvæði á Egilsstöðum, aðalskipulagsbreyting, vinnslutillaga

12.05.2022

Múlaþing kynnir fyrirhugaða breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna íþróttasvæðis á norðvestursvæði Egilsstaða í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Upptöku af kynningu vinnslutillögunnar má sjá hér að neðan ásamt uppdrætti og greinargerð. Jafnframt er hægt að nálgast vinnslutillöguna á skrifstofum sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings, Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 2. júní 2022.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings,

Sigurður Jónsson

 

Gögn til kynningar:

Greinargerð, dags. 3. maí 2022

Getum við bætt efni þessarar síðu?