Fara í efni

Klyppstaður, breyting á deiliskipulagi

13.01.2022

Heimastjórn Borgarfjarðar hefur samþykkt að unnin verði breyting á deiliskipulagi fyrir ferðaþjónustu í landi Klyppstaðs í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin er gerð vegna fyrirhugaðra framkvæmda við uppsetningu smávirkjunar fyrir ferðaþjónustusvæðið.

Hægt er að nálgast vinnslutillögu verkefnisins á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum eða hér á heimasíðunni. Áformin verða kynnt á Facebook síðu Múlaþings fimmtudaginn 13. janúar kl. 17:00

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 31. janúar 2022.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

 

Gögn til kynningar:

Vinnslutillaga, dags. 22. desember 2021

Getum við bætt efni þessarar síðu?