Fara í efni

Klyppstaður, deiliskipulagsbreyting, Tillaga

13.04.2022

Heimastjórn Borgarfjarðar hefur samþykkt að auglýsa tillögu vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir ferðaþjónustu í landi Klyppstaðs í Loðmundarfirði í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum, Hreppsstofu á Borgarfirði eystri eða hér neðar í fréttinni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Athugasemdum skal skilað skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 26. maí 2022.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

 

Gögn til auglýsingar:

Tillaga, dagsett 15. mars 2022

Getum við bætt efni þessarar síðu?