Fara í efni

Miðbær Egilsstaða, aðalskipulagsbreyting

31.01.2023

Múlaþing kynnir fyrirhugaða breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna miðbæjarsvæðis á Egilsstöðum í samræmi við 1. og 2. málsgrein 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Með breytingunni er verið að renna traustari stoðum undir stefnumörkun fyrir miðbæjarsvæði á aðalskipulagsstigi með því að hnykkja á sýn um uppbyggingu sem mótuð hefur verið á deiliskipulagsstigi. Hægt er að nálgast skipulags- og matslýsingu fyrirhugaðra breytinga auk vinnslutillögu þeirra á skrifstofum sveitarfélagsins og hér neðar í fréttinni.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings, Lyngási 12, 700 Egilsstöðum, eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 17. febrúar 2023.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Gögn til kynningar:

Skipulags- og matslýsing og vinnslutillaga, dags. 19. janúar 2023.

Getum við bætt efni þessarar síðu?