Fara í efni

Námur vegna Axarvegar, aðalskipulagsbreyting

14.07.2022

Sveitarstjórn Múlaþing hefur samþykkt að kynnt verði skipulagslýsing fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vegna fyrirhugaðra framkvæmda við nýjan Axarveg verður fimm nýjum námum bætt inn á aðalskipulag.

Upptöku af kynningu vinnslutillögunnar má sjá hér að neðan ásamt greinargerð. Jafnframt verður hægt að nálgast lýsinguna á skrifstofum sveitarfélagsins að Lyngási 12 á Egilsstöðum.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 5. ágúst 2022.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings
Sigurður Jónsson

Gögn

Greinargerð, dagsett 16. júní 2022

Kynning

Getum við bætt efni þessarar síðu?