Fara í efni

Námur vegna Axarvegar, aðalskipulagsbreyting

21.03.2023

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti á fundi 11. janúar 2023 að tillaga um breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna náma við nýjan Axarveg yrði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofum sveitarfélagsins og hér neðar í fréttinni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 4. maí 2023.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Skipulasgögn:

Námur vegna Axarvegar, dags. 10. mars 2023

Getum við bætt efni þessarar síðu?