Fara í efni

Námur vegna Axarvegar, aðalskipulagsbreyting, vinnslutillaga

28.09.2022

Múlaþing kynnir fyrirhugaða breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vegna fyrirhugaðra framkvæmda við nýjan Axarveg verður fimm nýjum námum bætt inn á aðalskipulag.

Vinnslutillagan er sett fram í greinargerð og má finna hana hér að neðan en jafnframt er hægt að nálgast hana á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12 á Egilsstöðum.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 20. október 2022.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings
Sigurður Jónsson

Gögn

Greinargerð, dags. 12. september 2022

Getum við bætt efni þessarar síðu?