Fara í efni

Ný akbraut við Egilsstaðaflugvöll, deiliskipulagsbreyting

20.10.2025

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 9. október 2025 að auglýsa tillögu vegna breytinga á deiliskipulagi Egilsstaðaflugvallar skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsáætlunin er unnin af Verkís fyrir hönd Isavia Innanlandsflugvalla ehf. og er tilkomin vegna áforma um nýja akbraut á Egilsstaðaflugvelli.

Smelltu hér til að skoða gögn og skila inn athugasemd.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 1. desember 2025. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Hugrún Hjálmarsdóttir

Getum við bætt efni þessarar síðu?