Fara í efni

Nýtt deiliskipulag, hreinsivirki við Melshorn

10.11.2021

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að unnið verði deiliskipulag fyrir skólphreinsivirki við Melshorn í samræmi við 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Múlaþing auglýsir hér  til kynningar vinnslutillögu deiliskipulagsins sbr. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga.

Áformin verða kynnt á facebook síðu Múlaþings fimmtudaginn 11. nóvember kl. 17:00 og verður upptakan aðgengileg hér á síðunni.

Vinnslutillagan er sett fram í greinagerð og á uppdrætti en er jafnframt til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 26. nóvember 2021.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?