Fara í efni

Selbrún, deiliskipulagsbreyting, Tillaga

07.07.2022

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum 27. júní 2022 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Brúna II í Fellabæ í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum eða hér neðar í fréttinni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 22. ágúst 2022.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

 

Gögn í auglýsingu:

Tillaga, dags. 28. júní 2022

Sniðteikningar A-D, dags. 28. júní 2022

Getum við bætt efni þessarar síðu?