Fara í efni

Skaganáma, aðalskipulagsbreyting

18.04.2023

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti á fundi 15. mars 2023 að auglýsa tillögu um breytingu á Aðalskipulagi Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2030 vegna stækkunar Skaganámu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofum sveitarfélagsins eða hér neðar í fréttinni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 2. júní 2023.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Skipulagsgögn:

 Aðalskipulag Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2030 - Breyting vegna stækkunar á Skaganámu. Dags. 01.03.23

Getum við bætt efni þessarar síðu?