Fara í efni

Skeggjastaðir, efnisnáma. Óveruleg breyting á aðalskipulagi.

06.01.2023

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 14. desember 2022 breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna efnisnámu í landi Skeggjastaða.

Breytingin felst í því að heimila grjótnám í landi Skeggjastaða til að afla efnis í nauðsynlega rofvörn á bökkum Jöklu. Ráðgert að vinna um 3.000 m3 af grjóti sem notaðir verða í um 200 m langa bakkavörn. Flatarmál námunnar verður um 1.000 m2.

Breytingin er ekki talin hafa veruleg áhrif á landnotkun né eru áhrif hennar metin mikil á einstaka aðila eða stórt landsvæði. Breytingin telst því óveruleg og hefur fengið meðferð skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hefur breytingin verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skrifstofu skipulagsfulltrúa, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir eða sent fyrirspurn á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is.

 

Skipulagsgögn

Skipulagsgreinargerð, dags. 4. nóvember 2022. Alta.

Getum við bætt efni þessarar síðu?