Fara í efni

Smávirkjun við Gestreiðarstaðaháls, nýtt deiliskipulag

17.01.2023

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að kynna skipulagslýsingu nýs deiliskipulags fyrir smávirkjun við Gestreiðarstaðaháls í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Neyðarlínan ohf. hyggst reisa smávirkjun í Langadalsá við Gestreiðarstaðaháls á Jökuldalsheiði sem ætlað er að leysa af hólmi dísel rafstöð við fjarskiptastöð á svæðinu. Vinnslutillagan er aðgengileg á skrifstofum sveitarfélagsins og hér neðar í fréttinni.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 8. febrúar 2023.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Gögn til kynningar:

Skipulagslýsing, dagsett 8. desember 2022

Getum við bætt efni þessarar síðu?