Fara í efni

Þéttbýli og efnisnáma, aðalskipulagsbreyting

17.03.2022

Sveitarstjórn Múlaþings hefur samþykkt að kynnt verði skipulagslýsing fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Borgarfjarðarhrepps 2004-2016 vegna breyting á þéttbýli og efnistökusvæði í Fjarðará í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin er þríþætt og gerir ráð fyrir stækkun íbúðasvæðis ÍB1, stofnanasvæði BS7 verður breytt í athafnasvæði BA1 og og stækkun á efnistökusvæði í Fjarðará.

Áformin verða kynnt á facebook síðu Múlaþings fimmtudaginn 17. mars kl. 12:00 og verður upptakan aðgengileg áfram. Jafnframt verður hægt að nálgast lýsinguna á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum og hér neðar í fréttinni.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 31. mars 2022.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

 

Gögn til kynningar:

Skipulagslýsing, dags. 16. febrúar 2022

Getum við bætt efni þessarar síðu?