Fara í efni

Útivistarsvæði í Selskógi, nýtt deiliskipulag

16.02.2023

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi 8. desember 2022 að tillaga nýs deiliskipulags fyrir útivistarsvæði í Selskógi yrði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofum sveitarfélagsins og hér neðar í fréttinni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við þær. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Múlaþings Lyngási 12, 700 Egilsstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 30. mars 2023.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

Sigurður Jónsson

Skipulagsgögn:

Skipulagsgreinargerð, dags. 10. janúar 2023

Skipulagsuppdráttur, dags. 10. janúar 2023

Getum við bætt efni þessarar síðu?