Fara í efni

Valgerðarstaðir, iðnaðar- og athafnasvæði, vinnslutillaga

12.05.2022

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að unnið verði nýtt deiliskipulag fyrir iðnaðar- og athafnasvæði við Valgerðarstaði í Fellabæ. Múlaþing auglýsir hér til kynningar vinnslutillögu deiliskipulagsins sbr. 40. gr. skipulagslaga.

Upptöku af kynningu vinnslutillögunnar má  sjá hér að neðan ásamt uppdrætti og greinargerð. Jafnframt er hægt að nálgast vinnslutillöguna á skrifstofum sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum.

Almenningi er gefinn kostur á að senda inn ábendingar og/eða athugasemdir til skipulagsfulltrúa Múlaþings, Lyngási 12, 700 Egilstöðum eða á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is til og með 2. júní 2022.

 

Skipulagsfulltrúi Múlaþings,

Sigurður Jónsson

 

Gögn til kynningar:

Uppdráttur, dags. 2. maí 2022

Greinargerð, dags. 2. maí 2022

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?