Fara í efni

Reikningar

Múlaþing birtir reikninga í stafrænu pósthólfi á island.is. Prófkúruhafar fyrirtækja hafa aðgang að sínum fyrirtækjum og geta veitt þeim umboð í gegnum island.is sjá nánar Umboð og aðgangsstýring á Ísland.is. Fólk sem ekki hefur aðgang að stafrænu pósthólfi getur óskað eftir afriti af reikningi með því að senda beiðni á innheimtur@mulathing.is

Viðskiptavinir geta óskað eftir því að fá reikninga senda rafrænt á XML formi í gegnum skeytamiðlara með því að senda beiðni á innheimtur@mulathing.is

Reikningar sem sendir eru á Múlaþing

Múlaþing óskar eftir að birgjar sendi reikninga með rafrænum hætti. Mælt er með að reikningar séu gefnir út í kerfi sendanda og sendir í gegnum skeytamiðlara.

Fyrir aðila sem senda fáa reikninga á ári getur sendanda sér að kostnaðarlausu sent reikninga í gegnum móttökuvef hjá skeytamiðlari Múlaþings. 

 Senda Múlaþingi rafrænan reikning

Fyrirspurnir um rafræna reikninga skal senda á bokhald@mulathing.is

Mikilvægt er að hafa reikninga rétta og með greinargóðum upplýsingum til að flýta fyrir samþykktarferli þeirra. Reikningar skulu vera stílaðir á réttan aðila, deildarnúmer/kostnaðarstaðar og nafn og kennitölu þess sem pantaði vöruna (þegar það á við).

Tekið er við reikningum fyrir:

  • Múlaþing
  • Hafnir Múlaþings
  • Ársalir
  • Vísindagarður

Á reikningi skal vera:

  • Upplýsingar um sendanda 
  • Númer reiknings (í hlaupandi töluröð)
  • Útgáfudagur reiknings og gjalddagi
  • Tilvísunarnúmer og lýsing (viðeigandi upplýsingar eftir þörfum s.s. bílnúmer, símanúmer, verknúmer,  stofnun, hver pantar o.s.frv.)
  • Lýsing á vöru og/eða þjónustu, magn, eining og einingarverð ásamt öðrum lögbundnum upplýsingum.
  • Viðbótarupplýsingar eins og tíma- og verkskýrslur skal senda sem viðhengi sem viðhengi á pdf formi með rafrænum reikningum.
Síðast uppfært 17. nóvember 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?