Lóðamál heyra undir skipulagsfulltrúa Múlaþings. Málaflokkurinn tekur til stofnun lóða, breytinga á lóðum ásamt afgreiðslu og úthlutun lóða.
Sækja um lóðarleigusamning
Almennt eru lóðir leigðar til 50 ára. Lóðaleiga er innheimt með fasteignagjöldum og er hún hlutfall af lóðamati.
Lóðarleigusamningar eru endurnýjaðir þegar eldri samningur er útrunninn eða þegar óskað er um breytingu á lóð.
Endurnýjun lóðarleigusamninga er unnin af starfsfólki skipalagsmála hjá sveitarfélaginu.
Hægt er að sækja um endurnýjun á á lóðaleigusamning eða breytingu á lóð með því að senda tölvupóst skipulagsfulltrui@mulathing.is. Ef veita þarf umboð til að undirrita lóðarleigusamning, nálgast má sniðmát af því að hafa samband við ofangreint netfang.
Ferli umsóknar
- Lóðarhafi/ umsækjandi sendir beiðni um endurnýjun eða breytingu á skipulagsfulltrui@mulathing.is.
- Lóðarleigusamningur er útbuinn í þríriti.
- Lóðarhafi/umsækjandi fær tilkynningu í tölvupósti þegar lóðarleigusamningur er tilbúinn til undirritunar.
- Lóðarhafar sem eru allir þinglýstir eigendur fasteigna á viðkomandi lóð, undirrita öll eintök lóðaleigusamningis á einhverri af skrifstofum sveitarfélagsins.
- Afgreiðslufulltrúi sveitarfélagins fer með lóðaleigusamninginn eintök í þinglýsingu hjá sýslumanni að lokinni greiðslu.
Ef kaupsamningi hefur verið þinglýst, og lóðarleigusamningur er útrunninn, þurfa bæði kaupandi og seljandi að skrifa undir lóðarleigusamninginn.