Fara í efni

Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings

12. fundur 03. mars 2026 kl. 10:00 - 10:10 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála

1.Umsókn um lóð, Austurtún 6

Málsnúmer 202601121Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn, dags. 19. janúar 2026, frá ÞHG ehf. um byggingarlóðina Austurtún 6 (L234911) á Egilsstöðum.
Skipulagsfulltrúi samþykkir fyrirliggjandi umsókn með vísan í samkomulag sveitarfélagsins við umsækjanda um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis sem undirritað var 31. mars 2025.
Starfsfólki falið að ganga frá úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

2.Umsókn um lóð, Oddagata 5

Málsnúmer 202602161Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn, dags. 18. febrúar 2026, frá Himnasmiðir ehf. um byggingarlóðina Oddagötu 5 (L237340) á Seyðisfirði í tengslum við flutning húss af Hafnargötu 42B sem stendur á hættusvæði.
Skipulagsfulltrúi samþykkir fyrirliggjandi umsókn með vísan í fyrirliggjandi kaupsamning, dags. 4. júní 2025, þar sem kveðið er á um að hús við Hafnargötu 42B sé selt til flutnings á Oddagötu 5.
Starfsfólki falið að ganga frá úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

Fundi slitið - kl. 10:10.

Getum við bætt efni þessarar síðu?