Fara í efni

Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings

14. fundur 05. maí 2026 kl. 10:00 - 10:25 á skrifstofu sveitarfélagsins, Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála

1.Umsókn um framkvæmdaleyfi, vegagerð, Merkjadalur frístundabyggð

Málsnúmer 202509178Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Bergsteini Brynjólfssyni vegna nýrrar aðkomu að fyrirhugaðri frístundabyggð, Merkjadal. Áformin eru í samræmi við stefnu aðalskipulags og gildandi deiliskipulag.
Skipulagsfulltrúi samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna fyrirhugaðrar veglagningar.

2.Umsókn um lóð, Bláargerði 20

Málsnúmer 202603054Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Magda Stankiewicz og Heiðari Snæbjörnssyni um byggingarlóðina Bláargerði 20 (L210971) á Egilsstöðum.
Skipulagsfulltrúi samþykkir fyrirliggjandi umsókn og felur starfsfólki að ganga frá úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

Fundi slitið - kl. 10:25.

Getum við bætt efni þessarar síðu?