Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

155. fundur 24. mars 2026 kl. 12:30 - 13:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Sigurður Gunnarsson formaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Einar Freyr Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Þórlaug Alda Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Alda Ósk Harðardóttir varamaður
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
Fundargerð ritaði: Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar

1.Öldungaráð Múlaþings - 12

Málsnúmer 2601005FVakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð Öldungaráðs frá 12. fundi ráðsins þann 15. janúar 2026.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

2.Hjólasöfnun og hjólaúthlutun Reiðhjólabænda 2026

Málsnúmer 202602219Vakta málsnúmer

Fyrir liggur kynningarbréf frá Reiðhjólabændum, dagsett 20. febrúar 2026, um hjólasöfnun og hjólaúthlutun samtakanna. Búið er að opna fyrir umsóknir en í apríl nk. hefst hjólaúthlutun til sveitarfélaganna.
Fjölskylduráð fagnar hjólasöfnun og úthlutun samtakanna og er sviðsstjóra velferðar falið að vekja athygli á verkefninu sem og að aðstoða umsækjendur eftir þörfum.

3.Styrkbeiðni vegna verkefnisins Sterkari út í lífið

Málsnúmer 202602130Vakta málsnúmer

Fyrir liggur styrkbeiðni vegna verkefnisins Sterkari út í lífið (sterkariutilifid.is), sem barst frá Sálfræðistofunni Höfðabakka sf. þann 16. febrúar sl.
Fjallað hefur verið um erindið og leggur Fjölskylduráð til að verkefnið verði styrkt um 100.000 krónur. Forsvarsmönnum er óskað góðs gengis með verkefnið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Fundagerðir Farsældarráðs á Austurlandi

Málsnúmer 202601225Vakta málsnúmer

Fyrir liggur 2. fundargerð Farsældarráðs Austurlands.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

5.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs 2026

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?