Fara í efni

Heimastjórn Borgarfjarðar

74. fundur 05. nóvember 2026 kl. 09:00 - 11:30 á skrifstofu sveitarfélagsins, Borgarfirði
Nefndarmenn
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir formaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson aðalmaður
  • Óttar Már Kárason aðalmaður
Starfsmenn
  • Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Girðingar á Borgarfirði

Málsnúmer 202611009Vakta málsnúmer

Heimastjórn áréttar fyrri bókanir sínar varðandi nauðsyn þess að girða meðfram veginum frá Landsenda að þorpi þar sem ær eru farnar að valda bæði hættu og skemmdum á veginum. Sumarumferðin hefur aukist gríðarlega undanfarin ár og er mikilvægt að fundin verði lausn á þessum vanda.
Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála kom inn á fundinn og þakkar heimastjórn honum fyrir að gera grein fyrir stöðu málsins. Stefáni falið að fylgja málinu eftir við Vegagerðina og upplýsa heimastjórn um framvinduna á næsta fundi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Gestir

  • Stefán Aspar Stefánsson

2.Áætlun eignamarka, jarðir í eigu Múlaþings

Málsnúmer 202610186Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) að áætlun um eignamörk jarða á Norðaustur- og Austurlandi, þar á meðal fyrir 22 jarðir í eigu Múlaþings.
Heimastjórn gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi áætlun um eignamörk en hvetur landeigendur, sérstaklega aðliggjandi jarða, til að skoða landeignaskrána og gera athugasemdir ef þörf krefur. Frestur til þess rennur út 3. desember næstkomandi og er það gert í gegnum island.is.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Úthlutun leiguhúsnæðis, Dagsbrún 2 720 Borgarfirði

Málsnúmer 202610246Vakta málsnúmer

Heimastjórn auglýsti til leigu íbúðina Dagsbrún 2 á Borgarfirði og rann umsóknarfresturinn út 26. október síðastliðinn. Þrjár umsóknir bárust.
Heimastjórn samþykkir að úthluta íbúðinni til Dagrúnar Sólu Óðinsdóttur. Starfsmanni falið að hafa samband við Dagrúnu varðandi afhendingartíma og leigusamning og upplýsa aðra umsækjendur um niðurstöðuna.

Samþykkt með tveimur atkvæðum (ÁMS, ÓMK), einn sat hjá (ÓAH).

4.Ósk um opinberan vindmæli frá Veðurstofu Íslands

Málsnúmer 202611007Vakta málsnúmer

Veðurstofa Íslands rekur veðurstöð sem staðsett er rétt ofan við þéttbýlið á Borgarfirði. Stöðin mælir þó aðeins hitastig og úrkomumagn. Heimastjórn fer hér með þess á leit við Veðurstofuna að settur verði upp vindhraðamælir á Borgarfirði.
Veðurstöð Vegagerðarinnar á Vatnsskarði segir ekkert til um veðurfar í þéttbýlinu. Að sama skapi gefur veðurspá Veðurstofunnar oft á tíðum ekki heldur upp rétta mynd af staðbundnu veðurfari á Borgarfirði þar sem vindmæli vantar. Afar mikilvægt er fyrir íbúa og mikinn fjölda gesta að geta nálgast raunupplýsingar um veðurfar. Starfsmanni falið að koma erindinu á framfæri við Veðurstofu Íslands.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Almenningssamgöngur í Múlaþingi

Málsnúmer 202406020Vakta málsnúmer

Tilraunaverkefni um samflutning fólks og farms milli Borgarfjarðar og Egilsstaða, sem innviðaráðuneytið veitti styrk til árið 2025, rennur út 31. mars 2027. Verkefnið hefur verið unnið með Borgarhöfn ehf. sem um árabil hefur séð um vöru- og fólksflutninga á milli kjarnanna. Vegagerðin sagði upp þjónustusamningi um almenningssamgöngur við Borgarhöfn um áramótin 2024/2025 með þeim afleiðingum að almenningssamgöngur lágu niðri í hálft ár.
Vegagerðin hefur nú kynnt endurskoðað leiðarkerfi fyrir landsbyggðarstrætó á Austurlandi og er leiðin milli Borgarfjarðar og Egilsstaðar ekki hluti af því, heldur skilgreind sem innanbæjarakstursleið. Múlaþing er fjölkjarnasveitarfélag og því ætti Vegagerðin að greiða almenningssamgöngur milli byggðakjarna sveitarfélagsins, annað vinnur gegn sameiningu sveitarfélaga. Heimastjórn Borgarfjarðar telur þessa niðurstöðu Vegagerðarinnar algjörlega óáæsttanlega og fer þess á leit að hún verði endurskoðuð, að öðrum kosti tryggi sveitarfélagið almenningssamgöngur til Borgarfjarðar.
Heimastjórn samþykkir að vísa málinu til byggðaráðs.

Samþykkt samhljðða með handauppréttingu.

6.Íbúafundir heimastjórnar Borgarfjarðar

Málsnúmer 202609227Vakta málsnúmer

Heimastjórn Borgarfjarðar boðar til árlegs íbúafundar í Fjarðarborg næstkomandi fimmtudag, 12. nóvember kl. 17. Súpa í boði.
Lagt fram til kynningar.

7.Samtal aðal- og varamanna heimastjórnar Borgarfjarðar

Málsnúmer 202611012Vakta málsnúmer

Máli frestað.

8.Fundir heimastjórnar Borgarfjarðar

Málsnúmer 202605187Vakta málsnúmer

Næsti fundur heimastjórnar verður haldinn fimmtudaginn 3. desember 2026. Erindi fyrir fundinn þurfa að berast fyrir kl. 12:00 föstudaginn 27. nóvember. Erindi skal senda á netfangið alda.kristinsdottir@mulathing.is eða bréfleiðis til skrifstofu.

Fundi slitið - kl. 11:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?